Afmæli og skírn

Jæja þá er litla skottan orðin 3 ára hvorki meira né minna. Það var yndislegur dagur sl. sunnudag þegar hún átti afmæli og litli prinsinn var skírður Viktor Kári. Athöfnin fór fram í Ástjarnarkirkju og það var Sr. Bára Friðriksdóttir sem skírði. Það var meira að segja sunginn afmælissöngurinn fyrir Hafdísi í kirkjunni. Maður var nánast klökkur yfir þessu öllu saman, allt svo notalegt og frjálslegt. Hafdís fór svo í fyrsta skipti í sunnudagaskólann eftir skírnina og fékk að lita og borða ávexti og gera margt fleira skemmtilegt.  Hún ætlar að fara aftur næsta sunnudag með pabba sínum.

Nú fer maður bara að huga að jólaundirbúningi, útbúa jólakort og svona. Alltaf gaman að dunda sér við eitthvað skemmtilegt fyrir jólin enda finnst mér jólin alltaf svo skemmtilegur tími.

Jæja verð að hætta, Viktor Kári þarf smá athygli Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgan

jólin jólin allstaðar með jólagleði og kreppupakka

til hamingju með sunnudaginn en og aftur. þarf svo að fara að kikka á ykkur með pakka handa frænda

ég er sko byrjuð að kaupa og græja jólagjafir,fór meira að segja áðan og keypti jólapappír, merkimið og skrautborða ætla svo að pakka inn jafnóðum svo ég bæti ekki endalaust við gjafirnar eins og ég geri alltaf....

knús á línuna 

Helgan, 23.10.2008 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband